GAGNAÞON 2026

October 31, 2026 8:00 AM
Gróska, Bjargargötu 1, 102 Reykjavik
Download agenda
GAGNAÞON 2026

Gagnaþon 2026 - verkefnalýsing

Gervigreindargagnaþon Hagstofu Íslands – smíðum snjalla leitarvél fyrir hagtölur

Markmið

Markmið gagnaþonsins er að þróa virka frumgerð að gervigreindardrifinni leitarvél sem gerir notendum kleift að spyrja um gögn Hagstofu Íslands á venjulegu máli og fá skýr, gagnreynd svör.

Lausnin skal byggja á LLM-mállíkani, RAG eða beinum fyrirspurnum í PX-Web API Hagstofunnar og notendavænu viðmóti, til dæmis spjallmenni á vefsíðu.

Þátttakendur geta valið að keyra bakendann á NVIDIA DGX Spark, öflugri tölvu með GPU eða LUMI-ofurtölvunni. Hægt verður að vinna með staðbundinn vektorgagnagrunn, sækja nýjustu tölur beint úr gagnagrunni Hagstofunnar með API-fyrirspurnum eða sameina báðar leiðir. Nota skal opin gögn Hagstofu Ísland en einnig er veittur aðgangur að viðeigandi reikniafli hjá Háskóla Íslands og gegnum Kveikju og Glóð samstarfsverkefnin.

Gagnaþonið stendur yfir í tvo sólarhringa og er ætlað háskólanemum, fagfólki og fyrirtækjum. Þátttakendur þurfa að hafa góða almenna forritunarþekkingu og geta þróað kerfi frá grunni. Reynsla af LLM, LoRA, RAG, AI-agentum og verkfærum á borð við Python, PyTorch, TensorFlow, Hugging Face, Ollama og GitHub er kostur, en ekki er krafist sérfræðiþekkingar á öllum þessum sviðum.

Afrakstur

Afrakstur gagnaþonsins skal vera virk frumgerð sem tekur við spurningu notanda, finnur rétta töflu og viðeigandi gögn, sækir eða endurheimtir tölurnar og skilar auðskiljanlegu svari með skýrri tilvísun í útgefnar hagtölur Hagstofunnar.

Skoða dæmi um spjallmennið Hag.

Hentar þessi áskorun þér?

‍Þú þarft að vera vanur forritari og geta tekið þátt í hönnun og smíði heildstæðrar AI-lausnar. Þekking á Python og einhverjum af eftirfarandi þáttum er æskileg: LLM/LoRA, RAG, vektorgagnagrunnar, API-samskipti, PyTorch, TensorFlow, Hugging Face, Ollama eða sambærileg verkfæri.

Hægt er að skrá einstaklinga eða teymi.

SKRÁNING

‍

‍Tímasetningar

  1. Fjarkynningarfundur mun fara fram þann 28. október klukkan 16.00. Fundartengill verður sendur á skráða þátttakendur.
  2. Setning gagnaþons fer fram föstudaginn 30. október klukkan 15:00, þar sem gögn og annað tengt efni verður gert aðgengilegt þátttakendum.
  3. Gagnaþonið sjálft hefst í Grósku laugardaginn 31. október klukkan 08:00. Húsið er opið og aðgengilegt þátttakendum til 22.00. Nánari dagskrá verður kynnt við setningu gagnaþonsins.

‍

‍

Hackathon 2026 – Project Description

Statistics Iceland AI Hackathon – Building a Smart Search Engine for Statistics

Goal

The goal of the hackathon is to develop a working prototype of an AI-powered search engine that allows users to ask questions about Statistics Iceland data in natural language and receive clear, evidence-based answers.

The solution should be based on an LLM (large language model), RAG (retrieval-augmented generation), or direct queries to Statistics Iceland’s PX-Web API, combined with a user-friendly interface, such as a chatbot on a website.

Participants can choose to run the backend on an NVIDIA DGX Spark, a powerful computer with a GPU, or the LUMI supercomputer. They can work with a local vector database, retrieve the latest figures directly from Statistics Iceland’s database through API queries, or combine both approaches. Participants should use Statistics Iceland’s open data. Access to relevant computing resources at the University of Iceland and through the Kveikja and Glóð collaborative projects will also be provided.

The hackathon runs for two days and is aimed at university students, professionals, and companies. Participants should have a solid foundation in general programming and be able to build systems from scratch. Experience with LLMs, LoRA, RAG, AI agents, and tools such as Python, PyTorch, TensorFlow, Hugging Face, Ollama, and GitHub is an advantage, but expertise in all these areas is not required.

Expected outcome

The deliverable of the hackathon should be a working prototype that accepts a user’s question, identifies the correct table and relevant data, retrieves the figures, and provides an easy-to-understand answer with a clear reference to Statistics Iceland’s published statistics.

See an example of the chatbot Hag.

Is this challenge right for you?

You should be an experienced programmer capable of contributing to the design and development of a complete AI solution. Knowledge of Python and some of the following areas is desirable: LLMs/LoRA, RAG, vector databases, API integrations, PyTorch, TensorFlow, Hugging Face, Ollama, or similar tools.

You can register individually or as part of a team.

REGISTRATION

‍

‍

Schedule

  1. Introduction - online on 28th 16.00 for teams. Link will be sent out to registered participants.
  2. An event kickoff on Friday Oct 30th at 15.00 including release of related hackathon material and data for the teams
  3. Opening of the hackathon/datathon event in Gróska on Saturday 31st Oct at 08.00. The house is open to 10pm. More detailed agenda presented on the opening day.
No items found.